Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Töf á afhendingu dvalarleyfiskorta

30. apríl 2025

Nokkurra vikna bið eftir afhendingu nýrra dvalarleyfiskorta á grundvelli tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu.

Yfir 4.000 dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu runnu út 2. mars 2025. Leyfi allra þeirra sem enn eru með skráð lögheimili á Íslandi verða framlengd sjálfkrafa um eitt ár.

Einstaklingar þurfa ekki að mæta í myndatöku til að fá leyfið framlengt. Hins vegar má gera ráð fyrir að það muni taka 6 til 8 vikur í viðbót að ljúka framleiðslu allra dvalarleyfiskortanna.

Því miður getur þjónustuver okkar ekki veitt upplýsingar um hvenær kortið þitt verður tilbúið en við munum senda þér SMS eða tölvupóst með upplýsingum um hvert þú getur sótt kortið um leið og það er tilbúið til afhendingar.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi bið kann að valda og þökkum fyrir þolinmæðina.