Takmarkanir á myndatökum 14. til 18. júní
7. júní 2021
Vegna uppfærslu á kortakerfinu verða takmarkanir á myndatökum í vikunni 14. til 18. júní og ekki hægt að gefa út dvalarleyfiskort á þeim tíma.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1pDsuc2GrePO2pRNyErZ8W/fbaaab440f9ea866aa4eef21097950f1/utlendingar2.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![World map](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1pDsuc2GrePO2pRNyErZ8W/fbaaab440f9ea866aa4eef21097950f1/utlendingar2.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Unnið er að innleiðingu nýrra dvalarleyfiskorta hjá Útlendingastofnun og er stefnt að því að taka þau í notkun í júlí. Þangað til nýju kortin hafa verið tekin í notkun verður útgáfa dvalarleyfiskorta áfram takmörkuð.
Vegna uppfærslu á kortakerfinu verða takmarkanir á myndatökum í vikunni 14. til 18. júní og ekki hægt að gefa út dvalarleyfiskort á þeim tíma.
Vinsamlegast gerið viðeigandi ráðstafanir og hafið samband sem fyrst ef þið þurfið dvalarleyfiskort til að ferðast á næstunni.