Fara beint í efnið

Myndatökur hafnar á ný

22. júní 2021

Myndatökur fyrir dvalarleyfiskort eru hafnar á ný eftir að hafa legið niðri vegna tæknilegra örðugleika.

Myndataka

Myndatökur fyrir dvalarleyfiskort eru hafnar á ný eftir að hafa legið niðri vegna tæknilegra örðugleika. Bóka þarf tíma í myndatöku á vefnum.

Unnið er að innleiðingu nýrra dvalarleyfiskorta hjá Útlendingastofnun og er stefnt að því að taka þau í notkun í júlí. Þangað til nýju kortin hafa verið tekin í notkun verður útgáfa dvalarleyfiskorta áfram takmörkuð.