Íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt
2. mars 2026
Óvíst hvenær næstu próf fara fram

Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að finna nýjan framkvæmdaraðila íslenskuprófa fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt.
Að svo stöddu liggur ekki fyrir hvenær næstu próf verða haldin. Útlendingastofnun mun birta upplýsingar um próftíma og skráningu um leið og stofnunin hefur þær undir höndum.