Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Framfærsluviðmið hækka

12. maí 2026

Fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og ríkisborgararétt

Eitt grunnskilyrða fyrir útgáfu dvalarleyfis og veitingu ríkisborgararéttar á Íslandi er að umsækjendur geti sýnt fram á að hafa næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfir.

Frá og með 18. maí 2026 hækkar framfærsluviðmið fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, úr 247.572 krónum í 259.951 krónur á mánuði. Viðmið fyrir hjón hækkar úr 396.115 krónum í 415.922 á mánuði. Upphæðir miðast við tekjur fyrir skatt.

Nýju viðmiðin gilda fyrir umsóknir sem berast frá og með 18. maí 2026.

Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar.