Fara beint í efnið

Framlenging dvalarleyfa vegna fjöldaflótta

23. febrúar 2024

Skilyrði að mæta í myndatöku

flags

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma 44. greinar útlendingalaga, um sameiginlega vernd við fjöldaflótta vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Framlengingin gildir til og með 2. mars 2025.

Framlenging leyfa sem eru að renna út

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sem gefin hafa verið út á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, verða framlengd til 2. mars 2025. Skilyrði fyrir framlengingu er að handhafi mæti í myndatöku fyrir nýtt dvalarleyfiskort, ekki fyrr en fjórum vikum áður og ekki síðar en fjórum vikum eftir að núverandi dvalarleyfi rennur út.

Dvalarleyfi einstaklinga sem ekki mæta í myndatöku verða ekki framlengd.

Lögheimili einstaklinga sem ekki eru lengur búsettir á Íslandi og mæta því ekki í myndatöku verða skráð úr landi 30 dögum eftir að núgildandi leyfi renna út. Vinsamlegast athugið að eingöngu dvalarleyfi einstaklinga sem búsettir eru á landinu verða framlengd.

Myndataka

Bóka þarf tíma í myndatöku á Útlendingastofnun | Noona. Myndatakan fer fram í móttökumiðstöðinni (Domus Medica) við Egilsgötu 3 í Reykjavík. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta farið í myndatöku á næstu sýsluskrifstofu.

Til að allir komist tímanlega í myndatöku er mikilvægt að hver og einn bóki ekki tíma fyrr en í fyrsta lagi fjórum vikum áður en núgildandi leyfi rennur út. Ef þú nærð ekki að bóka tíma í myndatöku áður en leyfið þitt rennur út skaltu bóka næsta lausa tíma.

Útlendingastofnun mun senda tímanlega áminningu á þau netföng og símanúmer sem skráð eru hjá stofnuninni. Þér er velkomið að senda tölvupóst á utl@utl.is til að tryggja að stofnunin hafi réttar upplýsingar um netfang þitt og símanúmer.