Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framfærsluviðmið hækka

16. janúar 2025

Fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og ríkisborgararétt

Eitt grunnskilyrða fyrir útgáfu dvalarleyfis og veitingu ríkisborgararéttar á Íslandi er að umsækjendur geti sýnt fram á að hafa næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfir.

Frá og með 1. febrúar 2025 hækkar viðmið fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, úr 239.895 krónum í 247.572 krónur á mánuði. Viðmið fyrir hjón hækkar úr 383.832 krónum í 396.115 á mánuði. Upphæðir miðast við tekjur fyrir skatt.

Nýju viðmiðin gilda fyrir umsóknir sem berast frá og með 1. febrúar 2025.

Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar.