Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dómsmálaráðuneyti leggur til að tímabundin vernd Úkraínubúa verði framlengd

3. október 2024

Ekki hægt að framlengja dvalarleyfi lengur en í þrjú ár samkvæmt núgildandi lögum

Dómsmálaráðuneytið hefur tilkynnt að það hyggist leggja fram frumvarp fyrir Alþingi í haust þar sem tímabundin vernd vegna fjöldaflótta Úkraínubúa verður framlengd til allt að fimm ára.

Um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir verða þær birtar á vef Útlendingastofnunar.

Bakgrunnur

Í mars 2022 virkjaði dómsmálaráðherra í fyrsta sinn 44. grein útlendingalaga um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta, sem viðbragð við innrás Rússa í Úkraínu. Virkjun ákvæðisins þýddi að umsóknir um alþjóðlega vernd, frá einstaklingum sem hingað flúðu frá Úkraínu, voru lagðar til hliðar og þeim í staðinn veitt tímabundin vernd á grundvelli hópmats.

Dvalarleyfi sem veitt er á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta er samkvæmt núgildandi lögum ekki heimilt að framlengja lengur en í þrjú ár frá því það var veitt fyrst. Í mars 2025 verða liðin þrjú ár frá því fyrstu einstaklingarnir sem flúðu hingað frá Úkraínu fengu veitt slík leyfi og því er þörf á lagabreytingum til þess að framlengja leyfin.