Brottvísanir skipverja Bandero
5. ágúst 2026
Útlendingastofnun hefur afgreitt 21 mál skipverja Bandero

Útlendingastofnun hefur afgreitt 21 mál skipverja Bandero og voru niðurstöður birtar skipverjum eða lögmönnum þeirra fyrir miðnætti 4. ágúst síðastliðinn. Beiðnir lögreglu um brottvísun og endurkomubann voru samþykktar en lengd endurkomubanns var einstaklingsbundið.
Ákvarðanir Útlendingastofnunar byggja meðal annars á mati og skýrslum lögreglu og Landhelgisgæslunnar. Ekki verða veittar upplýsingar um niðurstöðu einstakra mála eða forsendur og ákvarðanir verða ekki afhentar af hálfu stofnunarinnar.
Hægt er að kæra ákvarðanir til kærunefndar útlendingamála en kæra frestar ekki framkvæmd.
Útlendingatofnun hefur sent beiðnir um framkvæmd brottvísana til embættis ríkislögreglustjóra sem ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd þeirra.