Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Ársskýrsla Útlendingastofnunar 2025

2. júní 2026

Umsóknum um dvalarleyfi og ríkisborgararétt fjölgaði á meðan umsóknum um alþjóðlega vernd fækkaði

Starfsemi Útlendingastofnunar einkenndist af auknum umsvifum á flestum sviðum árið 2025 eins og lesa má úr ársskýrslu stofnunarinnar sem nú er komin út.

Umsóknum um fyrstu dvalarleyfi og endurnýjanir fjölgaði um 17%, úr 10.088 árið 2024 í 11.820 umsóknir árið 2025. Veitt dvalarleyfi voru 9.116, sem er 11% aukning frá fyrra ári, en synjunum fjölgaði um 26% úr 575 í 727. Flest dvalarleyfi voru veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar til maka og barna íslenskra ríkisborgara og erlendra ríkisborgara sem búa á Íslandi.

Mikil aukning varð einnig í umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt. Alls bárust Útlendingastofnun 2.407 umsóknir árið 2025, samanborið við 1.852 árið áður, sem er um 30% aukning milli ára. Veittur var ríkisborgararéttur til 1.057 einstaklinga, sem eru 68% fleiri veitingar en árið 2024 þegar þær voru 631.

Á sama tíma fækkaði umsóknum um alþjóðlega vernd. Þær voru 1.749 árið 2025 samanborið við 1.945 árið 2024, sem jafngildir um 10% fækkun. Umsóknum vegna fjöldaflótta frá Úkraínu fækkaði úr 1.235 í 1.087 en almennum umsóknum fækkaði úr 710 í 662. Afgreiddum umsóknum um vernd fækkaði í samræmi við fækkun umsókna um vernd á undanförnum árum. Veitingar vegna fjöldaflótta voru 973 og veitingar í efnismeðferð voru 177. Synjaðar umsóknir í efnismeðferð voru 122 og umsóknir sem ekki voru teknar til efnismeðferðar voru 119. Sjá nánar í Tölfræði verndarsviðs 2025.