Fara beint í efnið

4.155 umsóknir um vernd árið 2023

20. febrúar 2024

Tæplega 4.000 umsóknir afgreiddar á sama tíma

Umsóknir um vernd 2020-2023

Umsóknir um alþjóðlega vernd árið 2023 voru 4.155. Stærstur hluti umsóknanna kom frá ríkisborgurum tveggja ríkja, Úkraínu (1.618) og Venesúela (1.586).

Umsóknir frá ríkisborgurum annarra ríkja voru innan við þúsund talsins, flestar frá ríkisborgurum Palestínu (221), Nígeríu (116), Sómalíu (77) og Sýrlands (65). Samtals áttu umsækjendur ríkisföng í 64 löndum. 58 umsóknir komu frá einstaklingum sem ekki voru að sækja um vernd á Íslandi í fyrsta sinn.

Í samanburði við árið 2022 fækkaði umsóknum ríkisborgara Úkraínu um rúm 700 en umsóknum frá ríkisborgurum Venesúela fjölgaði um tæp 400. Fjöldi umsókna frá öðrum ríkisborgurum stóð nánast í stað milli ára. Um fimmtungur þessara umsækjanda hafði fengið veitta vernd í öðru Evrópuríki áður en þau sótt um vernd hér á landi.

Umsóknir um vernd eftir mánuðum 2023

Umsóknir um vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu voru að jafnaði 135 á mánuði og dreifðust nokkuð jafnt yfir árið. Meðalfjöldi umsókna frá Venesúela var að jafnaði um 190 á mánuði fyrri hluta ársins. Þeim fækkaði mikið á síðari hluta ársins og voru þá að jafnaði um 70 á mánuði.

Umsóknir um vernd eftir kyni og aldri 2023

Tæpur helmingur umsækjenda var á aldrinum 18 til 34 ára. Rúmur þriðjungur var eldri en 35 ára og tæpur fjórðungur börn. Rétt rúmur helmingur umsækjenda var karlkyns.

Ítarlegri upplýsingar um umsækjendur um vernd eftir ríkisfangi, kyni og aldri er að finna á tölfræðivef stofnunarinnar.

Afgreiddar umsóknir tæp 4.000

Afgreiddar umsóknir um vernd á árinu voru 3.940. Útlendingastofnun tók 3.466 ákvarðanir varðandi umsóknir og 458 drógu umsóknir sínar til baka. Sextán umsóknum var vísað frá þar sem um var að ræða endurteknar umsóknir einstaklinga sem þegar höfðu fengið svar við fyrri umsókn um vernd.

Afgreiddar umsóknir um vernd 2023

Veitingar í efnismeðferð og vegna fjöldaflótta

412 einstaklingum var veitt vernd, viðbótarvernd eða mannúðarleyfi í efnislegri meðferð. Stærstur hluti þeirra sem fékk jákvæða niðurstöðu voru ríkisborgarar Palestínu (153), Venesúela (58), Sýrlands (46), Afganistan (30) og Nígeríu (23).

1.560 einstaklingum var veitt mannúðarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu.

Vernd og viðbótarvernd fylgir dvalarleyfi með fjögurra ára gildistíma. Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða gildir í eitt ár. Leyfin eru endurnýjanleg.

Synjanir í efnismeðferð

Stærstur hluti þeirra 981 sem var synjað um vernd í efnislegri meðferð voru ríkisborgarar Venesúela (763), Kólumbíu (38), Sómalíu (34), Írak (15) og Jórdaníu (15).

Ákvörðun um synjun á vernd þýðir að umsækjanda ber að yfirgefa landið og fær hann alla jafna tveggja ára endurkomubann til Íslands fari hann ekki innan veitts frests.

Umsóknir sem ekki fengu efnismeðferð

513 umsóknir fengu ekki efnislega meðferð, ýmist vegna þess að annað ríki Dyflinnarsamstarfsins bar ábyrgð á umsókn viðkomandi, umsækjandinn hafði þegar fengið vernd í öðru ríki eða hafði dvalarleyfi í öruggu þriðja ríki. Stærstur hluti þeirra voru ríkisborgarar Palestínu (126), Nígeríu (104), Sómalíu (58), Venesúela (46) og Írak (33).

Ákvörðun um að umsókn fái ekki efnislega meðferð þýðir að umsækjanda beriað yfirgefa landið og fær hann eftir atvikum tveggja ára endurkomubann til Íslands.

Ítarlegri upplýsingar um niðurstöður afgreiddra umsókna eftir ríkisfangi, kyni og aldri umsækjenda er að finna á tölfræðivef stofnunarinnar.

Málsmeðferðartími

Umsóknir um vernd vegna fjöldaflótta voru að jafnaði afgreiddar á fjórum dögum. Meðalmálsmeðferðartími allra annarra ákvarðana varðandi umsóknir um vernd var 175 dagar.

Umsóknir sem fengu efnislega meðferð voru að jafnaði afgreiddar á 200 dögum. Í þeirri tölu vegur þungt mikill fjöldi umsókna frá ríkisborgurum Venesúela sem bárust á árinu 2022 og voru afgreiddar 2023. Ef þessar umsóknir eru undanskildar var meðalmálsmeðferðartími efnislegrar meðferðar 142 dagar.

Umsóknir sem ekki fengu efnislega meðferð voru að jafnaði afgreiddar á 117 dögum. Umsóknir ríkisborgara öruggra upprunaríkja voru að jafnaði afgreiddar á 13 dögum.

Aðstoð við sjálfviljuga heimför

Útlendingastofnun aðstoðaði 548 einstaklinga við að yfirgefa landið í kjölfar þess að hafa dregið umsókn sína til baka eða fengið synjun við umsókn um vernd. Til samanburðar yfirgáfu 98 einstaklingar landið sjálfviljugir árið á undan.

Flestir þeirra sem fengu aðstoð við sjálfviljuga heimför voru ríkisborgarar Venesúela sem höfðu dregið umsóknir sínar til baka.