Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Staða þinglýsinga

Þinglýsing skjala mánudaginn 23. mars 2026

Móttaka, þinglýsing, afgreiðsla, aflýsing og afhending þinglýstra skjala fara fram í skrifstofu embættisins að Hlíðasmára 1, Kópavogi á 1. hæð, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:30 til kl. 15:00 og föstudaga frá kl. 8:30 til 14:00.

Eftirfarandi skjöl hafa verið könnuð/þinglýst:

Almenn skjöl:

Skjöl sem voru móttekin til og með 18. mars hafa verið yfirfarin og má vitja þeirra.
Þann 30. mars n.k. verður reynt að hafa almenn skjöl sem koma inn til þinglýsingar í dag tilbúin.

Viðskiptavinir eru þó hvattir til að kynna sér stöðuna á heimasíðunni áður en þeir vitja skjalanna. (með almennum skjölum er átt við önnur skjöl en þau sem getið er sérstaklega hér fyrir neðan)

Eignaskiptayfirlýsingar og lóðamarkabreytingar:

Eignaskiptayfirlýsingar sem komu inn til þinglýsingar 18. mars eða fyrr hafa nú verið yfirfarnar, hafi þær verið afgreiddar af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Sé ekki búið að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingu getur verið að hún sé haldin annmörkum og er þá best að hafa samband við þinglýsingar til að fá nánari upplýsingar.

Eldri eignaskiptayfirlýsingum hefur verið þinglýst hafi þær uppfyllt lagaskilyrði.

Lóðarmarkabreytingar sem komu inn til þinglýsingar 18. mars s.l. eða fyrr hafa verið yfirfarnar. Sé ekki búið að þinglýsa skjölunum getur verið að þau sé haldin annmörkum og er þá best að hafa samband við þinglýsingar til að fá nánari upplýsingar.

Aflýsingar:

Aflýst hefur verið skjölum sem bárust 20. mars s.l.

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:30 - 15
Fös. 9:30 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14