Fara beint í efnið

Jafnlaunastefna sýslumannsins á Suðurlandi

Jafnlaunastefna


Jafnlaunastjórnunarkerfi embættis sýslumannsins á Suðurlandi kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja
öllu starfsfólki sömu réttindi varðandi launajafnrétti sem kveðið er á um í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og
jafnan rétt kynjanna. Laun skulu greidd eftir eðli starfa og taka mið af þeim kröfum sem þau gera. Forsendur
launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga, studdar rökum og tryggi að
allt starfsfólk fái jöfn laun og sömu kjör fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf óháð kyni.
Til þess að fylgja eftir jafnlaunastefnu sýslumannsins á Suðurlandi skuldbindur embættið sig til að:
• Innleiða jafnlaunastjórnunarkerfi sem byggist á staðlinum ÍST 85, það skjalfest og því viðhaldið með
eftirliti, viðbrögðum og stöðugum umbótum.
• Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf og athugað
hvort mælist óútskýrður kynbundinn launamunur. Kynna skal fyrir starfsfólki niðurstöður
launagreiningar sem er til úttektar nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því.
• Bregðast við ef kröfur staðalsins eru ekki uppfylltar þ. á m. óútskýrðum kynbundnum launamun með
stöðugum umbótum og eftirliti.
• Framkvæma innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar
en á þriggja ára fresti.
• Framkvæma rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.
• Fylgja lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta árlega að þeim sé
hlítt.
• Kynna jafnlaunastefnu árlega fyrir starfsfólki og skal hún vera aðgengileg á innri og ytri vef.
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna. Fjármálstjóri er fulltrúi jafnlaunastjórnunarkerfis og skal starfsfólk leita
til hans með athugasemdir eða fyrirspurnir.
Jafnlaunastefna þessi var gefin út þann 18. febrúar 2022.

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15