Fara beint í efnið

Jafnlaunastefna sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

Stefna Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu er að allt starfsfólk njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf. Laun og önnur starfskjör eru ákvörðuð eftir umfangi og eðli starfa, og taka mið af kröfum starfs. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga og byggist á málefnalegum forsendum óháð kyni.

Til þess að framfylgja jafnlaunastefnu skuldbindur embættið sig til að:

  • Skjalfesta og viðhalda jafnlaunastjórnunarkerfi með stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

  • Viðhalda vottun og bregðast við frábrigðum og athugasemdum þegar þau koma upp og stuðla að forvörnum.

  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta árlega að þeim sé hlítt.

  • Framkvæma rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.

  • Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman jafnverðmæt og sambærileg störf

    til að athuga hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar

  • Kynna fyrir starfsfólki niðurstöður árlegrar launagreiningar sem er til úttektar nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því.

  • Framkvæma innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.

  • Kynna stefnuna fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega almenningi á vef sýslumanna.

Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna embættis Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Mannauðsstjóri er fulltrúi jafnlaunastjórnunarkerfis og skal starfsfólk leita til hans með athugasemdir eða fyrirspurnir.

Útg. 3.0 9/2022

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15