Upplýsingasíða um sameiningu sýslumannsembætta
15. apríl 2026
Sérstök upplýsingasíða á Ísland.is í tengslum við sameiningu sýslumannsembættanna sem tekur gildi 1. janúar árið 2027 hefur verið sett í loftið.

Markmiðið með sameiningu er að bæta þjónustu við almenning, hámarka nýtingu fjármagns sem sýslumanni er veitt og að vinna markvisst að þeim markmiðum sem stefnt er að í byggðaáætlun og stefnuáherslu ríkisstjórnar. Í dag eru sýslumannsembættin níu talsins og dreifast þau um allt landið. Við gildistöku er gert ráð fyrir að starfsstöðvarnar haldi áfram starfsemi sinni og þjónustan haldist í meginatriðum óbreytt.
Með sameiningunni skapast þó aukin tækifæri til að samræma þjónustu og bæta aðgengi óháð búsetu, efla starfsemi og standa vörð um þjónustu og störf á landsbyggðinni.
Upplýsingasíðuna má finna hér: Um sameiningu sýslumannsembætta