Umboðsmaður TR verður í Vík mánudaginn 15. desember
11. desember 2025
Umboðsmaður Tryggingastofnunar verður á skrifstofu sýslumannsins á Suðurlandi í Vík mánudaginn 15. desember frá kl. 10:00 til 15:00.

Þau sem þurfa á aðstoð eða upplýsingum að halda varðandi málefni Tryggingastofnunar eru velkomin að koma og hitta umboðsmanninn.