Sýslumannsembættin hlutu Upplýsingatækniverðlaun Ský 2026
9. febrúar 2026
Sýslumannsembættin hlutu Upplýsingatækniverðlaun Ský 2026, sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Verðlaunin voru afhent á UTmessunni 6. febrúar 2026.

Sýslumannsembættin hlutu Upplýsingatækniverðlaun Ský 2026 fyrir markvissa innleiðingu rafrænnar og stafrænnar þjónustu sem hefur einfaldað þjónustuferla og bætt aðgengi almennings að opinberri þjónustu. Verðlaunin voru afhent á UTmessunni 6. febrúar 2026.
Innleiðing stafrænnar þjónustu hjá sýslumannsembættunum hefur falið í sér fjölgun rafrænna ferla og lausna sem hafa haft áhrif á framkvæmd opinberra mála. Á vef sýslumanna á Ísland.is eru nú fjölmargar þjónustur aðgengilegar rafrænt, að hluta eða öllu leyti, meðal annars á sviði dánarbúa, þinglýsinga, vottorða, vegabréfa, ökuskírteina, sakavottorða og fjölskyldumála.
Í umfjöllun Ský kemur fram að þessi þróun hafi stuðlað að því að færa þjónustu nær almenningi og styrkja stafræna opinbera þjónustu.