Fara beint í efnið

Ný útgáfa sakavottorða

31. janúar 2022

Ný og endurbætt útgáfa stafrænna sakavottorð er nú aðgengileg.

Hond_tolva

Nú geta allir sótt sakavottorð í gegnum stafræna umsókn, óháð stöðu í sakaskrá. Áður voru aðeins útgefin stafræn sakavottorð án brota.

Þá eru sakavottorð nú sjálfkrafa með þýðingu á ensku, það er því ekki lengur þörf á því að sækja sérstaklega um vottorð á ensku.

Umsóknin er í nýju umsóknarkerfi Ísland.is og sömuleiðis tengd nýju greiðslukerfi Ísland.is. Greiðslukvittanir verða strax sýnilegar undir Fjármál á Mínum síðum Ísland.is

Umsóknin er tengd við starfskerfi sýslumanna. Starfsmenn sýslumanna geta því fylgst með öllum málum og veitt þjónustu ef þess þarf.

Mikil aukning hefur verið á útgáfu sakavottorða undanfarin ár en árið 2021 voru 13.500 sakavottorð gefin út sem er 37% aukning milli ára. Undir lok ársins voru sjö af hverjum tíu vottorðum sótt stafrænt sem hefur í för með sér gríðarlegan tímasparnað fyrir almenning. Með einföldum útreikningi um vegalengdir má ætla að stafræn útgáfa sakavottorða spari umsækjendum árlega um 190 þúsund kílómetra í akstur og um 11.000 vinnustundir hjá sýslumönnum og umsækjendum.  Sparnaður samfélagsins af þessum stafrænu umbreytingum er því beinn og áþreifanlegur og hleypur á tugum ef ekki hundruðum milljóna, að ógleymdum jákvæðum umhverfisáhrifum.

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15