Fara beint í efnið
Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Ný framtíðarsýn fyrir sýslumenn

13. mars 2021

Mótun á framtíðarsýn fyrir sýslumannsembættin, sem felur í sér að þar verði veitt framúrskarandi þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar almenningi hverju sinni.

Hond_tolva

Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út skýrsluna Sýslumenn:  Framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri. Með skýrslunni er mótuð framtíðarsýn fyrir sýslumannsembættin, sem felur í sér að þar verði veitt framúrskarandi þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar almenningi hverju sinni.

Starfsemi sýslumanna hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum sem að miklu leyti má rekja til tækniframfara í samfélaginu. Til að embættin geti fylgt þróuninni þykir ljóst að styrkja þurfi tækniinnviði með því að hagræða miðað við núverandi rekstrarforsendur og þannig skapa svigrúm í rekstri samhliða því að bæta þjónustuna.

Í skýrslunni er farið yfir stöðuna og þær áskoranir og tækifæri sem felast í breyttu verklagi vegna tækninýjunga, með hliðsjón af kröfum viðskiptavina embættanna til nútíma stjórnsýsluhátta.

Skýrslunni er ætlað að vera grunnur að frekari stefnumótun og skipulagningu sýslumannsembættanna, þar sem nútíma tækni er nýtt til að hagkvæmari rekstri og skilvirkari þjónustu.

Hér má lesa skýrsluna

Orðrétt heimild:  Frétt á vef dómsmálaráðuneytisins 9. mars 2021

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15