Fara beint í efnið

Hætt við 100% hækkun vanrækslugjalds

7. september 2021

Ákveðið hefur verið að fella niður ákvæði um að vanrækslugjald skuli hækka um 100% að liðnum tveimur mánuðum frá álagningu þess. Mun þessi hækkun því ekki koma til framkvæmda og hámarksfjárhæð vanrækslugjalds af almennum ökutækjum verða 20.000 kr. en af ökutækjum yfir 3,5 tonn og bílum fyrir 9 farþega eða fleiri 40.000 kr. eins og áður hafði verið ákveðið.

umferd

Horfið hefur verið frá 100% hækkun vanrækslugjalds vegna skoðunar ökutækja sem tæki gildi ef ekki hefði verið brugðist við innan tveggja mánaða frá álagningu.

Samkvæmt reglugerð um skoðun ökutækja sem tók gildi 1. maí sl. hækkaði vanrækslugjald ökutækja úr 15.000 kr. í 20.000 kr. vegna allra flokka ökutækja en í 40.000 kr. vegna fólksflutningsbíla fyrir níu farþega eða fleiri, vöruflutningabíla eða aftanívagna yfir 3,5 tonn. Sú nýlunda var í reglugerðinni að hefði ökutækið ekki verið fært til skoðunar eða skráð úr umferð innan tveggja mánaða frá álagningu myndi gjaldið hækka um 100%.

Samkvæmt nýrri reglugerð, sem birt var í Stjórnartíðindum 6. september sl. verður horfið frá þeirri 100% hækkun sem tiltekin var í reglugerð um skoðun ökutækja. Því mun grunnfjárhæð gjaldsins haldast óbreytt eftir þessa tvo mánuði og verða sem áður segir 20.000 kr. vegna allra ökutækja annarra en þeirra sem sérstaklega eru talin hér að framan en vegna þeirra verður hún 40.000 kr.

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15