Greiðslukvittanir frá sýslumönnum færast á vefinn island.is
17. janúar 2018
Fjársýsla ríkisins sendir nú allar kvittanir frá sýslumönnum rafrænt inn á pósthólf gjaldanda á vefnum island.is. Því er pappírskvittanir ekki sendar lengur í pósti.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/78ECHj4LX1qv2bK75ltckS/0888ade81d6a4aff31f0d74c244c391a/island_is_blatt-700x700.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Ísland.is blátt merki](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/78ECHj4LX1qv2bK75ltckS/0888ade81d6a4aff31f0d74c244c391a/island_is_blatt-700x700.png?w=774&fm=webp&q=80)
Þetta gildir um allar færslur hvort sem um innborgun á skuld eða útborgun inneignar er að ræða og jafnframt ef inneign hefur verið skuldajafnað.
Til að nálgast kvittanirnar er farið á slóðina https://minarsidur.island.is/ þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig þar inn er smellt á “Pósthólf - er bréf til þín” en þar birtast kvittanirnar ásamt öðrum skjölum sem send hafa verið til þín frá opinberum aðilum.