Fara beint í efnið
Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Einfaldara ferli til að sækja um ökuskírteini

19. október 2026

Nú geta þeir sem sækja um námsheimild og fyrsta ökuskírteini, fullnaðarskírteini og um endurnýjun ökuskírteina fyrir 65 ára og eldri notað myndir úr skilríkjaskrá við frágang umsókna.

Hægt verður að notast við myndir úr skilríkjaskrá að uppfylltum aldursskilyrðum þeirra til að ganga frá umsókn. Hingað til hafa umsækjendur þurft að mæta til sýslumanns til að skila inn mynd og læknisvottorði. Skilríkjaskrá er miðlægur gagnagrunnur sem Þjóðskrá og sýslumenn notast við til að gefa út og framleiða skilríki. Í nýju umsóknarferli er einnig hægt að skila inn læknisvottorði þegar þess er krafist.

Alls berast um 8.000 umsóknir um bráðabirgðaskírteini á ári. Að einu til þremur árum liðnum sækir fólk um fullnaðarskírteini og eru þær umsóknir einnig um 8.000 á ári. Árið 2025 bárust þar að auki um 20.000 umsóknir um endurnýjun ökuskírteina hjá fólki 65 ára og eldra og um 4.000 umsóknir um samrit ökuskírteinis.

Þessi breyting er miðuð að því að einfalda þjónustu og draga úr heimsóknum til sýslumanns. Verkefnið er unnið í samstarfi við lögregluna, Samgöngustofu, Stafræns Íslands og Þjóðskrár.

Að neðan fylgja upplýsingar um hámarksaldur mynda úr skilríkjaskrá.

  • 16 og 17 ára: ekki eldri en 1 árs

  • 18 ára: ekki eldri en 2 ára

  • 19 ára: ekki eldri en 3 ára

  • 20 ára: ekki eldri en 4 ára

  • 21 árs: ekki eldri en 5 ára

  • 22 ára: ekki eldri en 6 ára

  • 23-24 ára: ekki eldri en 7 ára

  • 25-26 ára: ekki eldri en 9 ára

  • 26 ára og eldri: ekki eldri en 10 ára

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14