Ísland er meðal allra fremstu þjóða heims á sviði stafrænnar þjónustu. Ein forsenda þess árangurs er að geta með skjótum hætti komist frá hugmynd og í framkvæmd á uppsetningu nýrra lausna.
Það getur verið áskorun að aðlaga opinber innkaupaferli að þeirri hugmyndafræði og því var ákveðið að bjóða út rammasamning um þverfagleg hugbúnaðarteymi. Samningurinn var fyrst gerður 2020 og svo endurnýjaður 2021 og 2026.
Fyrir hvert nýtt verkefni er gerður sérstakur verksamningur við teymi innan rammasamnings. Unnið er eftir kvikri aðferðafræði (e. agile) og því eru verksamningarnir yfirleitt til skemmri tíma í einu í samræmi við skilgreinda spretti.