Aldrei er góð vísa of oft kveðin / Ertu með kortið?
21. júlí 2026
Sjúkratryggingar og ferðalög erlendis

Ferðalög innan ESS + Sviss + Bretlands
Sjúkratryggingar hvetja þau sem hyggja á ferðalög innan landa ESS auk Sviss og Bretlands til þess að hafa evrópska sjúkratryggingarkortið meðferðis. Ef kortinu er framvísað hjá opinberum veitanda heilbrigðisþjónustu innan þessara landa á sjúklingur að greiða sama verð fyrir þjónustuna og einstaklingar sem eru sjúkratryggðir í landinu sem heimsótt er. Sjúkratryggingar endurgreiða erlenda ríkinu þennan kostnað. Þessi réttur sjúklings til þess að fá nauðsynlega þjónustu vegna veikinda og slysa sem upp koma á ferðalagi gildir jafnvel þó um sé að ræða sjúkrahúslegu og/eða kostnaðarsamar rannsóknir og meðferð.
Hafið í huga.
Gætið að því að evrópska sjúkratryggingakortið sé í gildi (gildistíminn er 3 ár, 5 ár fyrir elli- og örorkulífeyrisþega).
Þegar sótt er um nþað ýtt kort er sent á lögheimili þitt en það getur tekið 10-14 virka daga að koma.
Í umsókninni um Evrópska sjúkratryggingakortið er hægt að sækja um bráðabirgðakort sem berst strax inn á pósthólfið á Ísland.is PDF-formi. Þú getur notað það ef þú hefur týnt kortinu sjálfu eða ef þú hefur ekki tíma til að bíða eftir því.
Hér sækir þú um: Evrópska sjúkratryggingakortið | Ísland.is
Ef evrópska sjúkratryggingakortinu er ekki framvísað við þjónustuaðila innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis er hægt að sækja um greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum þegar heim er komið. Nánari upplýsingar: Sjúkratrygging íslenskra ferðamanna erlendis | Sjúkratryggingar
Ferðalög utan ESS + Sviss + Bretlands
Ekki er hægt að nota evrópska sjúkratryggingakortið á ferðalögum utan Evrópu. Ef sérstök ferðatrygging hefur ekki verið fengin þarf sjúklingur því almennt að greiða kostnað vegna heilbrigðisþjónustu úr eigin vasa en hægt er að sækja um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga þegar heim er komið. Afgreiðsla endurgreiðslunnar er svo breytileg eftir hverju máli fyrir sig. Sama gildir raunar ef leitað er til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu innan Evrópu, en þar gildir evrópska sjúkratryggingakortið ekki.
Ef um er að ræða alvarleg veikindi, til dæmis með sjúkrahúslegu og yfirvofandi mikinn kostnað er sjúkratryggðum einstaklingum bent á að hafa samband við Sjúkratryggingar.
Flutningur til Ísland með sjúkraflugi
Ef svo kemur upp að einstaklingar veikjast á ferðalögum erlendis og það verður bið á að nægilegur bati náist svo hægt sé að komast heim með almennu flugi þá þurfa ferðalangar að hafa í huga að sjúkratrygging á Íslandi felur ekki í sér rétt til þess að fá heimflutning til Íslands með sjúkraflugi. Ferðatryggingar vátryggingarfélaga og sem einnig geta fylgt árgjöldum kreditkorta geta hins vegar náð til slíks kostnaðar. Mikilvægt er að þau sem hyggja á ferðalög erlendis hafi þetta í huga áður en lagt er af stað, því tryggingarvernd fæst ekki eftir á.
Í neyðartilvikum ber ávallt að hafa samband við neyðarnúmer viðkomandi lands (112 innan Evrópu).
