Ertu að fara í ferðalag?
13. apríl 2026
Nokkrir hlutir til að hafa í huga þegar ferðast er erlendis

Að ýmsu þarf að huga þegar ferð til útlanda er undirbúin. Eitt þeirra atriða er það hvernig bregðast skal við ef upp koma veikindi eða slys á ferðalagi. Sjúkratryggingu á Íslandi fylgja umtalsverð réttindi til þess að njóta nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu á ferðalögum erlendis. Engu að síður er mikilvægt að hver og einn hugi að sinni stöðu og meti hvort nauðsynlegt sé að afla sér auka ferðatrygginga sem gjarna fylgja árgjöldum kreditkorta og sem einnig er hægt að kaupa hjá vátryggingarfélögum. Slík trygging getur verið mikilvæg á ferðalögum ef þörf er fyrir þjónustu sem evrópska sjúkratryggingakortið nær ekki til.
Ferðalög innan Evrópu
Sjúkratryggingar hvetja þau sem hyggja á ferðalög innan Evrópu til þess að hafa evrópska sjúkratryggingarkortið meðferðis. Ef kortinu er framvísað hjá opinberum veitanda heilbrigðisþjónustu innan landa EES auk Sviss og Bretlands á sjúklingur að greiða sama verð fyrir þjónustuna og einstaklingar sem eru sjúkratryggðir í landinu sem heimsótt er. Sjúkratryggingar endurgreiða erlenda ríkinu þennan kostnað og hlaupa slíkar kröfur milli ríkja á þúsundum ár hvert. Þessi réttur sjúklings til þess að fá nauðsynlega þjónustu vegna veikinda og slysa sem upp koma á ferðalagi gildir jafnvel þó um sé að ræða sjúkrahúslegu og/eða kostnaðarsamar rannsóknir og meðferð.
Hér sækir þú um: Evrópska sjúkratryggingakortið | Ísland.is
Ef evrópska sjúkratryggingakortinu er ekki framvísað við þjónustuaðila innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis er hægt að sækja um greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum þegar heim er komið. Sjúkratryggingar afgreiða nokkur hundruð slíkar kröfur ár hvert. Nánari upplýsingar: Sjúkratrygging íslenskra ferðamanna erlendis | Sjúkratryggingar
Ferðalög utan Evrópu
Ekki er hægt að nota evrópska sjúkratryggingakortið á ferðalögum utan Evrópu. Ef sérstök ferðatrygging hefur ekki verið fengin þarf sjúklingur því almennt að greiða kostnað vegna heilbrigðisþjónustu úr eigin vasa en hægt er að sækja um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga þegar heim er komið. Afgreiðsla endurgreiðslunnar er svo breytileg eftir hverju máli fyrir sig. Sama gildir raunar ef leitað er til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu innan Evrópu, en þar gildir evrópska sjúkratryggingakortið ekki.
Ef um er að ræða alvarleg veikindi, til dæmis með sjúkrahúslegu og yfirvofandi mikinn kostnað er sjúkratryggðum einstaklingum bent á að hafa samband við Sjúkratryggingar.
Flutningur til Ísland með sjúkraflugi
Því miður kemur fyrir að einstaklingar veikjast á ferðalögum erlendis og getur verið bið á að nægilegur bati náist svo hægt sé að komast heim með almennu flugi. Ferðalangar þurfa að hafa í huga að sjúkratrygging á Íslandi felur ekki í sér rétt til þess að fá heimflutning til Íslands með sjúkraflugi. Ferðatryggingar vátryggingarfélaga og sem einnig geta fylgt árgjöldum kreditkorta geta hins vegar náð til slíks kostnaðar. Mikilvægt er að þau sem hyggja á ferðalög erlendis hafi þetta í huga áður en lagt er af stað, því tryggingarvernd fæst ekki eftir á.
