Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Punktaletur

Punktaletur er upphleypt letur byggt á sex punkta einingum (sellum (enska; cells)).

Um punktaletur

Hægt er að raða punktum upp á 63 mismunandi vegu og mynda 63 mismunandi tákn og mynda alla stafi stafrófsins, tölustafi, greinarmerki og alls kyns tákn. Samræming er milli stafrófa sem notast við latneskt letur eins og íslenskt punktaletur, en punktasamsetningar sem tákna séríslenska stafi og broddstafi gætu táknað aðra bókstafi í öðrum tungumálum.

Svo blindir og sjónskertir geti lesið punktaletur verða punktarnir að vera upphleyptir enda er lesið með fingrunum. 

  • Þeir sem þannig lesa nota báðar hendur; hafa alla fingur á lesmálinu og nota eins marga og þeir geta til lesturs.

  • Þeir sem hraðast lesa nota báðar hendur þannig að þeir lesa með vinstri hönd að miðri leslínunni, þá tekur sú hægri við og les að enda línunnar á meðan sú vinstri fer niður í þá næstu og les hana að miðju og þannig koll af kolli. 

Það má því segja að sú vinstri lesi vinstri helming lesmálsins og sú hægri þann hægri. Þeir sem ná tökum á þessari tækni ná yfirleitt góðum lestrarhraða.

Að læra að lesa punktaletur

Punktaletur gagnast þeim sem hafa enga sjón eða svo skerta að þeir sjá ekki til að lesa prentað letur. Lestur punktaleturs krefst þess að lesendur hafi nokkuð gott þreifiskyn, en þreifiskynið má í flestum tilfellum þjálfa upp.

Kennsluaðferðir eru einstaklingsbundnar og fara til dæmis eftir því hvort verið sé að kenna barni að lesa eða fullorðnum einstaklingi að nýta sér annað form á lesmáli – annað letur.

Oftast er stuðst við kennsluhefti þar sem stafir eru lagðir inn smátt og smátt og lesnar æfingar á milli sem byggja á þeim stöfum sem nemandinn hefur lært. Oft eru gerðar skriftaræfingar samhliða, því æfingar í notkun ritvélar/punktaleturskjás eru nauðsynlegar til að ná betri tökum á letrinu.

Punktaleturskennsla barna

Börn sem fæðast blind eða svo sjónskert að talið er að þau nái ekki viðunandi lestrarhraða með því að læra prentletur læra að lesa punktaletur. Þau læra þá að lesa á sama hátt og jafnaldrar þeirra – eini munurinn er sá að um punktaletur er að ræða. Kennarar þeirra sækja þá námskeið hjá Miðstöðinni til að vera í stakk búnir til að sinna kennslu punktaleturs undir handleiðslu ráðgjafa á Miðstöðinni. Sjá nánar bækling um punktaletur fyrir foreldra og kennara (pdf).

Punktaleturskennsla fullorðinna

Lögð er áhersla á að kenna einstaklingum með hrörnandi sjón punktaletur svo þeir séu betur undirbúnir þegar að því kemur að þeir sjá ekki lengur til að nýta sér hefðbundið prentletur. Fullorðið fólk sem missir sjón eða verður sjónskert vegna sjúkdóma eða slysa lærir einnig punktaletur og sjá sérfræðingar Miðstöðvarinnar um þá kennslu.

Tæknibúnaður

Þau sem sjá ekki á hefðbundinn skjá geta nýtt sér tölvur í daglegu lífi.