Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Viltu læra að kenna blindum/sjónskertum einstaklingum áttun og umferli?

8. maí 2024

Sjónstöðin, í samstarfi við Stuðningur til sjálfstæðis, sem er sjóður á vegum Blindrafélagsins og Blindravinafélagsins, býður á haustmánuðum upp á nám í kennslu í áttun og umferli. Námið er á háskólastigi og er metið til 10 eininga á framhaldsstigi (diplóma).

Hvitir-stafir-threifistafur-merkistafur-studningsstafur

Námið er á ábyrgð danska háskólans Sydjyllands professionalhojskole, í samvinnu við IBOS, sem er dönsk endurhæfingarmiðstöð fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.

Forkröfur eru grunnnám á háskólastigi auk tveggja ára starfsreynslu í tengdu fagi. Athugið að námið fer fram á ensku en námsgögn verða á dönsku. Nemendur geta valið hvort þeir vilji skila verkefnum á dönsku eða ensku.

Námið er nemendum sem fá inngang þeim að kostnaðarlausu. Um er að ræða fjarnám með fjórum staðlotum sem fara fram í Hamrahlíð 17, fjórum sinnum yfir haustmánuðina og er skyldumæting í þær lotur.

  • 4.-11. september

  • 21.-25. október

  • 18.-22. nóvember

  • 9.-13. desember

Með umferli er átt við skilning einstaklings á umhverfi sínu. Í náminu er lögð áhersla á aðferðir og leiðir við að komast frá einum stað til annars, innandyra sem utan.

Í kennslu á áttun og umferli er kennd:

  • Notkun hvíta stafsins

  • Líkams-, rýmis- og umhverfisvitund

  • Hugtakaþjálfun

  • Rötun og áttun

  • Minnisþjálfun

  • Kortalestur

  • Kennileiti

  • Notkun staðsetningarforrita

  • Leiðsögutækni

Umsækjendur senda póst á sjonstodin@sjonstodin.is fyrir 2. júní, á ensku, ásamt afriti af prófskírteini, ferilskrá og stutta greinagerð um ástæður fyrir áhuga á náminu. Eingöngu eru um 2 sæti að ræða og munu kennarar námsins fara yfir umsóknirnar og meta inn í námið.

Nánari upplýsingar

Sjónstöðin

Hvað er umferli?

Stuðningur til sjálfstæðis

Instituttet for Blinde og Svagsynede (ibos.dk)

Sydjyllands professionalhojskole (nánari upplýsingar um námið)

Sjónstöðin

Hafðu samband

Símanúmer: 545 5800

sjonstodin@sjonstodin.is

Kennitala: 480109 1390

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga 9 til 16
föstudaga 9 til 12

Símaafgreiðsla
Mánudaga til fimmtudaga 9 til 12 og 13 til 16, föstudaga 9 til 12

Heim­il­is­fang

Hamrahlíð 17
105 Reykjavík
Sjá staðsetningu á korti

Fylgdu okkur

Facebook
RSS feed