Sjónstöðin tekur þátt í þróun nýrrar tækni
27. febrúar 2026
Sjónstöðin mun taka þátt í þróun nýrrar tækni og matstækja á sjón sem miðar að því að bæta mat og eftirfylgni hjá fólki með mismunandi sjónskerðingar. Verkefnið er á fyrstu stigum þróunar og er ekki aðgengilegt almenningi enn sem komið er.

Hvar er verkefnið statt?
Nú er verið að þróa frumgerðir sem stefnt er að því að prófa í svokallaðri alfa-prófun, þar sem bæði notendur og fagfólk taka þátt í áframhaldandi þróun.
Tilgangurinn er að veita fagfólki betri og nákvæmari mælitæki til að fylgjast með sjón og þróun hennar yfir tíma. Með skýrari upplýsingum verður hægt að laga þjálfun, ráðgjöf og þjónustu betur að raunverulegum þörfum hvers og eins.
Hvernig virkar þessi nýja tækni?
Tæknin byggir á sýndarveruleikagleraugum sem sýna notandanum myndir eða texta. Í gleraugunum er hraður augnhreyfingamælir sem fylgist með því hvert horft er á skjánum. Einnig er mælt hvernig höfuðið hreyfist, þar sem margir nota höfuðhreyfingar til að bæta upp fyrir skerta sjón. Að auki er búnaður sem mælir rafvirkni í heila í tengslum við sjónáreiti. Með þessu er safnað ítarlegum og hlutlægum gögnum um hvernig notandi skynjar það sem hann sér.
Hverju á þessi nýja tækni að skila?
Markmiðið er að gera mælingar einfaldari og notendavænni. Hefðbundin sjónsviðspróf geta verið löng og krefjandi, þar sem notandi þarf að sitja kyrr og einbeita sér að ákveðnum punkti í langan tíma. Það getur verið óþægilegt og stundum óljóst hvort eitthvað hafi sést eða ekki. Með nýju tækninni er stefnt að því að gera prófið meira líkt eðlilegri upplifun, til dæmis að horfa á myndskeið eða myndir, á meðan kerfið safnar upplýsingum sjálfkrafa. Notandinn þarf því ekki að framkvæma flókin eða erfið verkefni.
Vonast er til að þessi aðferð dragi úr rangri niðurstöðu og gefi skýrari mynd af raunverulegri sjóngetu. Tæknin gæti einnig nýst til að finna út hvaða leturgerð, leturstærð, litir og birtuskil henta hverjum og einum best. Með því að mæla til dæmis leshraða og augnhreyfingar er hægt að fá hlutlægar vísbendingar um hvaða stillingar gera lestur skilvirkari og þægilegri.
Lögð er rík áhersla á notendamiðaða þróun. Með því að fá bæði notendur og fagfólk að borðinu frá upphafi er markmiðið að skapa lausn sem byggir á raunverulegum þörfum en ekki aðeins tæknilegum hugmyndum. Verkefnið er enn í þróun, en lofar að bæta bæði upplifun notenda og vinnu fagfólks þegar fram í sækir.