Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Sjónstöðin skoðar úrræði fyrir fólk með sjónskerðingu í kjölfar áfalls í heila.

20. mars 2026

Sjónstöðin fékk styrk fyrir Erasmus+ til að skoða hvaða úrræði eru til fyrir fólk sem verður sjónskert í kjölfar áfalls í heila.

Íslenski hópurinn ásamt nemendum við ioba augndeild háskolans i Valladolid sem kynnti okkur fyrir sjón-endurhæfingu eftir sjóntap í kjölfar heilaáverka.

Sjónstöðin leiðir samstarfsverkefnið : Find the Puzzle – Coping with Vision Loss afte Brain Injury um að kanna hvaða úrræði eru til í Evrópu fyrir einstaklinga sem fá sjónskerðingu eða sjónræna erfiðleika í kjölfar áfalls í heila.

Mikilvægt verkefni.

Áfall í heila getur haft margvísleg áhrif á einstaklinginn og margir verða fyrir sjóntruflunum eða einhvers konar sjónskerðingu líkt og gaumstoli. Mikilvægt er að það liggi fyrir upplýsingar um þá þjónustu og þá endurhæfingu sem er í boði fyrir hópinn. En oft á tíðum er litið fram hjá því í endurhæfingu. Sjónstöðin mun líka leitast við að finna út hvaða meðferð er í boði hér heima og að loknu verkefninu fræða aðila sem taka á móti einstaklingum sem hafa orðið fyrir áfalli í heila um þá endurhæfinga mögleika eða þá þjálfunar möguleika sem eru í boði fyrir hópinn.

Sjónstöðin eru nýlögð af stað í verkefnið og fór fyrsti verkefnafundur af stað í október og 2. Fundur haldinn nú nýverið í mars.

Alþjóðlegt samstarf.

Samstarfsaðilar Sjónstöðvarinnar í verkefninu eru frá fjórum löndum. Samstarfsaðili á Íslandi er Starfsmennt starfsþróunarsetur. Aðrir samstarfsaðilar eru BFW Halle endurhæfingarstöð í Þýskalandi, Licht and Liefde frá Belgíu sem rekur endurhæfingarstöðvar fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga. Einnig er spænskur samstarfsaðili, Rapture Games sem sér um tæknilega hluta verkefnisins sem gengur út á að miðla upplýsingum til annarra.

Við sjáum að það er ýmislegt sem löndin í kringum okkur eru að gera en það vantar samhæfðan gagnagrunn um hvað er til þarna úti. Þetta verður því mikil akkur fyrir Sjónstöðina að geta komið með þekkingu heim til að miðla áfram til notenda.