Sjónstöðin Fyrirmyndarstofnun ársins 2025
16. febrúar 2026
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru tilkynntar á hátíð Sameykis 12. febrúar 2026 . Að þessu sinni var Sjónstöðin ein af þeim ríkisstofnunum sem tilnefndar voru til Stofnunar ársins.

Hvað er "Stofnun ársins"?
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Hvernig fer valið fram?
Titlana Stofnun ársins – ríkisstofnanir, Stofnun ársins – borg og bær og Stofnun ársins – sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsfólks þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða.
Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Hvernig stóð Sjónstöðin sig?
Af tæplega 150 ríkisstofnunum sem tóku þátt í valinu hafnaði Sjónstöðin í 5. sæti. Í flokknum "Minni stofnanir" (5 - 39 starfsmenn ) hafnaði Sjónstöðin einnig í 5. sæti. Þetta er annað árið í röð sem Sjónstöðin hafnar í 5. sæti í sínum flokki en að þessu sinni hækkaði Sjónstöðin sig um eitt sæti yfir allar stofnanir frá því fyrra þegar Sjónstöðin hafnaði í 6. sæti.
Fyrirmyndarstofnanir
Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Sjónstöðin er því Fyrirmyndarstofnun annað árið í röð og starfsfólk Sjónstöðvarinnar er afar stolt og ánægt með þennan árangur.