Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Öndunar- og líkamsvitundarnámskeið – Grunnnámskeið

19. mars 2026

Í apríl býður Sjónstöðin upp á námskeið sem fjallar um hvernig öndun, líkamsstaða og taugakerfi vinna saman og hvernig við getum með einföldum æfingum aukið slökun, líkamsvitund og betra jafnvægi í daglegu lífi.

Á námskeiðinu verður meðal annars unnið með:

  • einfaldar öndunaræfingar

  • hvernig öndun hefur áhrif á taugakerfið

  • 360 gráðu þindaröndun

  • líkamsstöðu og líkamsvitund

  • hvernig hægt er að nota stuttar æfingar í daglegum athöfnum

Þátttakendur fá bæði skýrar útskýringar á því hvernig líkaminn og taugakerfið vinna saman og verklegar æfingar sem hægt er að nota strax í daglegu lífi.

Upplýsingar um námskeiðið

Fjöldi skipta: 4

Tímalengd: 1,5 klukkustund í senn

Staðsetning: Sjónstöðin, 6. hæð

Tími: kl. 13:00 á föstudögum.

Dagsetningar: 3., 10., 17., 23. apríl

Leiðbeinendur: Þorkell J. Steindal og María Hildiþórsdóttir

Skráning og nánari upplýsingar: í síma 4545800 eða á netfangið afgreidsla@sjonstodin.is

Viðtökur

Dagana 30. janúar til 6. mars fór fram tilraunanámskeið í öndunar- og líkamsvitund. Endurgjöf þátttakenda var almennt mjög jákvæð. Margir lýstu því að námskeiðið hefði aukið meðvitund þeirra um öndun og líkamsstöðu.

Einn þátttakandi orðaði upplifun sína þannig:

„Ég hugsa miklu meira um öndun en ég gerði áður.“

Þátttakendur nefndu einnig að þeir væru orðnir meðvitaðri um líkamsstöðu sína og að þeir notuðu æfingar úr námskeiðinu í daglegum aðstæðum, til dæmis þegar setið er, gengið eða þegar róa þarf taugakerfið.

„Ég er farin að nota öndunaræfingar í daglegu lífi, til dæmis til að róa mig fyrir svefn eða þegar ég finn fyrir streitu.“