Námskeiðið, "Get ég elskað lífið mitt eins og ég ætlaði ekki að hafa það?", fyrir blinda og sjónskerta
24. ágúst 2026
Hugarfar hefur áhrif á hvernig fólk tekst á við áföll og tilfinningar sem fólk upplifir þegar það missir sjón eða sjón minnkar, t.d þegar hvíti stafurinn er orðinn nauðsynlegt hjálpartæki og einkabíllinn hættir að vera valkostur.

Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa nýlega komið í þjónustu Sjónstöðvarinnar, þó eru allir notendur Sjónstöðvarinnar velkomnir.
Um hvað snýst námskeiðið?
Á þessu námskeiði bjóða Halldór Sævar Guðbergsson og Bjarni Karlsson blindum og sjónskertum einstaklingum upp á fræðslu, samtal og hópavinnu. Lögð er áhersla á trúnað og gagnlega samvinnu.
Þrjú þemu verða tekin fyrir:
Meðhöndlun óvelkominna tilfinninga
Sorg og sorgarúrvinnsla
Virk og vanvirk samskipti
Við hlustum m.a. á æskusögur hvers annars. Ræðum um það hvernig sjálfsmynd okkar mótaðist, hvernig við sáum heiminn sem börn og unglingar og hvaða aðferðir við þróuðum til að bjarga okkur.
Við skoðum gleði og raunir fullorðinsáranna og spyrjum hvort aðferðir okkar í lífsbaráttunni þurfi kannski á uppfærslu að halda?
Hvenær er námskeiðið?
Boðið verður upp á fjögur námskeið, miðuð að aldri og kyni. Námskeiðið verður kennt 1x í viku í 4 skipti. Tveir tímar með kaffipásu hverju sinni.
Námskeiðin hefjast 6. og 7. október og þeim lýkur 27. og 28. október.
Eldri karlar (60 ára og eldri) þriðjudaga kl. 14:00-16:00 - hefst 6. október
Yngri karlar (yngri en 60 ára) þriðjudaga kl. 16:30-18:30 - hefst 6. október
Eldri konur (60 ára og eldri) miðvikudaga kl. 14:00-16:00- hefst 7. október
Yngri konur (yngri en 60 ára) miðvikudaga kl. 16:30 -18:30 - hefst 7. október
Skráning
Skráning fer fram á netfangið sjonstodin@sjonstodin.is eða í síma 545-5800. Námskeiðsskráning er hafin og stendur til föstudagsins 2. október.
Kostar námskeiðið?
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Hvar er námskeiðið haldið?
Námskeiðið verður haldið á Sjónstöðinni, Hamrahlíð 17, 6. hæð.
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur námskeiðsins eru: Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur og Halldór Sævar Guðbergsson, íþróttakennari og fyrrv. formaður ÖBÍ réttindasamtaka og Blindrafélagsins.