Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Málþing um punktaletur

30. september 2026

Þann 15. október standa Sjónstöðin og Blindrafélagið fyrir málþingi um punktaletur í sal Blindrafélagsins á 2. hæð að Hamrahlíð 17.

Viðfangsefni

Notendur og fagfólk fjalla um punktaletur, stiklað verður á stóru í sögu þess á Íslandi og rædd staða punktaleturs í dag, ásamt þeim áskorunum og tækifærum sem fram undan eru. Einnig verður boðið upp á að skoða ýmsa tækni og lausnir sem eru í boði fyrir punktaletursnotendur og gefst góður tími til umræðna í lok málþingsins.

Tímasetning

Málþingið hefst kl. 16.00 og lýkur í síðasta lagi kl. 18.00.

Skráning

Fyrir málþingið býður Blindrafélagið upp á kaffiveitingar kl. 15.30 í tilefni af degi hvíta stafsins, sem haldinn er hátíðlegur 15. október ár hvert. Dregið verður í happdrætti úr hópi þeirra sem mæta með hvítan staf í hendi. Til að auðvelda skipulag og áætla fjölda er beðið um skráningu í kaffið á netfangið afgreidsla@blind.is.