Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Laust starf iðjuþjálfa hjá Sjónstöðinni

12. júní 2024

Laust er til umsóknar 100% starf iðjuþjálfa sem mun starfa við ráðgjöf hjá Sjónstöðinni -þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

Sjónstöðin - og image

Laust er til umsóknar 100% starf iðjuþjálfa sem mun starfa við ráðgjöf hjá Sjónstöðinni -þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.Sjónstöðin sinnir ráðgjöf, fræðslu og stuðningi með það að markmið að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf og fræðsla í málaflokknum til notenda þjónustu og samstarfsaðila

  • Gerð þjónustuáætlana og eftirfylgni

  • Sjálfstæði í starfi

  • Mat á þörf á hjálpartækjum og kennsla.

  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi i teymum innan og utan stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Starfsréttindi sem iðjuþjálfi.

  • Reynsla af vinnu með einstaklingum með sjónskerðingu og/eða samþætta- sjón og heyrnarskerðingu er kostur

  • Jákvætt viðmót, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi

  • Rík þjónustulund

  • Góð færni í ritaðri og munnlegri íslensku og ensku.

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sjónstöðin hvetur jafnt karla sem konur til að sækja um þessa stöðu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.Sjónstöðin er þjónustu- og þekkingarmiðstöði sem er ábyrg og framsækin stofnun sem veitir framúrskarandi heildstæða þjónustu með jafnrétti í fyrirrúmi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2024

Nánari upplýsingar veitir:

Vala Jóna Garðarsdóttir, vala.gardarsdottir@sjonstodin.is

Sími: 545 5800

Sækja um starf

Sjónstöðin

Hafðu samband

Símanúmer: 545 5800

sjonstodin@sjonstodin.is

Kennitala: 480109 1390

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga 9 til 16
föstudaga 9 til 12

Símaafgreiðsla
Mánudaga til fimmtudaga 9 til 12 og 13 til 16, föstudaga 9 til 12

Heim­il­is­fang

Hamrahlíð 17
105 Reykjavík
Sjá staðsetningu á korti

Fylgdu okkur

Facebook
RSS feed