Kynntu þér hjálpartæki fyrir blint og sjónskert fólk
14. október 2026
Í tilefni af degi hvíta stafsins 15. október verður Sjónstöðin með fjölbreytt hjálpartæki til sýnis.

Staður
Hamrahlíð 17, salur á 2. hæð
Tími
Klukkan 14:00 - 15:30
Starfsfólk Sjónstöðvarinnar verður á staðnum, sýnir búnaðinn, útskýrir hvernig hann nýtist í daglegu lífi og svarar spurningum.
Málþing um stöðu punktaleturs á Íslandi
Hjálpartækjasýningin er í tengslum við málþing um stöðu punktaleturs á Íslandi en það hefst klukkan 16:00 í sal Blindrafélagsins á 2. hæð.
Komdu við, skoðaðu, prófaðu og fáðu upplýsingar beint frá fagfólki.