Könnun um punktaletursnotkun á Íslandi sýnir fram á mikilægi þess
15. október 2026
Könnunin sýnir að punktaletur gegnir mikilvægu hlutverki í sjálfstæði, námi, vinnu og ritlæsi blindra og sjónskertra, þó notkun og þarfir séu ólíkar eftir því hvenær fólk lærir letrið.

Virkir notendur nýta punktaletur mikið í daglegu lífi og með tækni á borð við punktaletursskjái, en þeir sem læra síðar þurfa gjarnan meiri samfellu, æfingu og eftirfylgd til að viðhalda færni. Báðir hópar kalla eftir auknum sýnileika punktaleturs í samfélaginu og betra aðgengi að merkingum. Tækniþróun felur bæði í sér áskoranir og tækifæri og mikilvægt er að tryggja að punktaletur haldi áfram að vera lifandi og aðgengilegur hluti af samfélaginu.