Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Könnun um atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra

19. mars 2026

Í júní 2025 lét Sjónstöðin framkvæma könnun meðal notenda á atvinnualdri (18-67 ára). Breytingar á örorkulífeyriskerfinu tóku gildi 1. september sama ár og var markmið könnunarinnar að afla gagna um stöðu blindra og sjónskertra á vinnumarkaði áður en breytingarnar áttu sér stað til að meta hvernig þær hafi áhrif á stöðu hópsins.

Svörun

Könnuninni svöruðu 105 notendur sjónstöðvarinnar. Þar af voru:

  • 43% svarenda sjónskertir

  • 42% lögblindir

  • 12% blindir

37% svarenda höfðu lokið grunnskólaprófi, 29% stúdentsprófi og 27% háskólaprófi.

57,8% svarenda sögðust vera í launuðu starfi þegar könnunin var gerð og 15% í námi.

Niðurstöður

49% svarenda töldu sjónskerðingu hafa haft áhrif á menntunarval þeirra. 62% telja menntun sína nýtast vel í starfi. Yfirgnæfandi meirihluti svarenda töldu sér ekki hafa verið neitað um starf vegna sjónskerðingar á síðustu 10 árum. 35% töldu sig hafa orðið fyrir fordómum í námi eða starfi á sama tímabili

Flestir sem sögðust vera í launuðu starfi voru í hlutastarfi en Meðalfjöldi vinnustunda þátttakenda var 27 klst á viku. Af þeim sem ekki voru í launuðu starfi sögðu 38% svarenda að sjónskerðing væri aðalástæða þess að þeir væru ekki í launuðu starfi, en 40% sögðu að sjónskerðing hafi áhrif á það að hluta til.

Hver er staða hópsins samkvæmt könnuninni?

Ljóst er að því hærra sem menntunarstig svarenda var, því meiri líkur voru á að þeir væru í launuðu starfi. Jafnframt eru þeir sem eru sjónskertir líklegri til að vera í launuðu starfi, en blindir eru hlutfallslega líklegri til að vera utan vinnumarkaðar. Einnig er áberandi að blindir svarendur verði mun frekar fyrir fordómum í námi og starfi, en 67% blindra svarenda sögðust hafa orðið fyrir fordómum í starfi á síðustu 10 árum, samanborið við 43% lögblindra og 14% sjónskertra.

Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að atvinnuþátttaka meðal blindra og sjónskertra einstaklinga á aldrinum 18-67 ára er nokkuð góð. Einnig var stór hluti svarenda með háskólamenntun. Að lokum vekja jákvæð viðhorf svarenda til þjónustu Sjónstöðvarinnar, en 87% sögðust vera ánægð með þjónustuna.