Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Dagur hvíta stafsins

15. október 2024

Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttu- og vitundardagur blindra og sjónskertra, er haldinn 15. október ár hvert. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á hvíta stafnum og hagsmunamálefnum blindra og sjónskertra einstaklinga.

Hvíti stafurinn

Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttu- og vitundardagur blindra og sjónskertra, er haldinn 15. október ár hvert. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á hvíta stafnum og hagsmunamálefnum blindra og sjónskertra einstaklinga, þá sérstaklega aðgengismálum og þeim hindrunum sem hamla að þeir geti lifað sjálfstæðu lífi og verið samfélagslega virkir. Helstu hagsmunamál snúa meðal annars að bættu aðgengi að menntun, atvinnu, samgöngum, upplýsingum og tækni.

Hvað er hvíti stafurinn?

Hvíti stafurinn er mikilvægt hjálpartæki sem:

  • notað er til að afla upplýsinga í umhverfinu sem ferðast er um.

  • getur aðstoðað blinda og sjónskerta mikið og aukið sjálfstæði og öryggi við að komast leiðar sinnar.

  • minnir jafnframt sjáandi vegfarendur á að notandi hvíta stafsins er sjónskertur og upplifir því umhverfið og umferðina ekki á sama hátt og hinn sjáandi vegfarandi.

Þrjár gerðir stafa

  • Þreifistafur: Hefðbundinn hvítur stafur sem notaður er í umferli. Hann er langur og oftast samanbrjótanlegur. Á göngu er honum haldið fyrir framan vegfarandann til að upplýsa hann um hugsanlegar hindranir eða misfellur í veginum eða til að fullvissa notandann um að leiðin sé greið. Hann er líka notaður til að finna hluti og kennileiti og aðstoðar þannig einstaklinginn við að staðsetja sig.

  • Merkistafur: Stuttur og samanbrjótanlegur stafur sem er merki til umhverfisins um að notandinn sé sjónskertur. Stafinn má einnig nota til að þreifa á og finna hluti í umhverfinu.

  • Göngustafur: Stafur sem hægt er að stilla lengdina á. Stafurinn er notaður til stuðnings og til að halda betur jafnvægi.

Í tilefni dagsins eru notendur hvíta stafsins hvattir til þess að taka fram hvíta stafinn sinn og auka þannig sýnileika hans.