Dagur Helen Keller
29. júní 2026
Dagur Helen Keller var haldinn síðastliðinn laugardag.

Frumkvöðull
Helen Keller var bandarískur rithöfundur, fyrirlesari og baráttukona sem missti bæði sjón og heyrn ung að aldri. Hún varð síðar þekkt um allan heim fyrir hugrekki sitt, menntun og mikilvægt framlag til réttindabaráttu fatlaðs fólks.
Áhugaverður fróðleikur
Í tilefni dagsins fylgja hér nokkrir fróðleiksmolar um samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, sem oft er kölluð daufblinda.
Hvað er daufblinda?
Daufblinda er samþætt sjón- og heyrnarskerðing í þeim mæli að skertu skynfærin eiga erfitt með að bæta upp fyrir hvort annað. Það gerir daufblindu að sértækri fötlun sem hefur áhrif á samkipti, aðgengi að upplýsingum og þátttöku í samfélaginu. Með réttri þjónustu, stuðningi og aðlögun er þó hægt að efla sjálfstæði, öryggi og lífsgæði einstaklinga.
Bjóddu aðstoð
Spurðu áður en þú grípur inn í.
Bjóddu fram aðstoð þína en ekki þvinga hana á fólk. Spurðu til dæmis "Ger ég aðstoðað þig?"
Að bjóða fram aðstoð er kurteisi - að þvinga hana upp á fólk er óvirðing.
Kynntu þig
Segðu hver þú ert.
Byrjaðu alltaf á að kynna þig með nafni þegar þú nálgast einhvern með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Segðu hver þú ert og hvað þú vilt. Ekki gera ráð fyrir að viðkomandi sjá eða heyri þig nálgast.
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing á efri árum
Einn af hverjum fjórum einstaklingum 80 ára og eldri býr við einhvers konar skerðingu á bæði sjón og heyrn.
Hvað getum við gert?
Hlustum af athygli og tölum skýrt.
Tryggjum góðar aðstæður. Góð lýsing skýrir sjónina og minni hávaði auðveldar samkipti.
Styðjum sjálfstæði. Veitum upplýsingar. Aðgengi og góð þjónusta hjálpa fólki að halda áfram að vera virkt og þátttakandi.
Vekjum athygli. Því fyrr sem skerðingu er tekið alvarlega, því betri stuðningur fæst.