ATH! Breytt dagsetning á háskólanemafundi. Ný dagsetning er 27. ágúst
14. ágúst 2026
Háskólanemafundurinn sem auglýstur var föstudaginn 21. ágúst verður fimmtudaginn 27. ágúst kl. 14-16 á Sjónstöðinni, Hamrahlíð 17, 6. hæð.

Hvað verður farið yfir á fundinum?
Farið verður yfir hjálpartæki, aðlögun á lesefni og ýmsa tækni sem kemur sér vel í námi, þar á meðal gervigreind. Sjónstöðin leggur áherslu á að þjónusta háskólanemendur eftir aðstæðum hvers og eins.
Námsráðgjafar
Námsráðgjöfum þeirra háskóla þar sem sjónskertir stunda nám verður boðið á fundinn.
Skráning
Skráning fer fram í síma 545-5800 eða á netfangið sjonstodin@sjonstodin.is. Skráningarfrestur er til og með þriðjudagsins 25. ágúst.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar veita Þórdís á netfangið: thordis@sjonstodin.is og Halldór Sævar á netfangið halldorsaevar@sjonstodin.is.
Kemstu ekki?
Þeim sem ekki hafa tök á að mæta í Hamrahlíðina er velkomið að nettengjast fundinum.
Gott tækifæri
Þetta er kjörið tækifæri til að hitta aðra nemendur í svipaðri stöðu til að bera saman bækur sínar og hvetjum við alla háskólanema að skrá sig og mæta.