Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Aðstandendanámskeið fyrir aðstandendur blindra og sjónskertra

19. október 2026

Þegar ástvinur missir sjón eða glímir við sjónskerðingu hefur það áhrif á alla fjölskylduna og getur kallað fram sorg, kvíða, gremju, þreytu og óvissu – en líka nýja nánd, þakklæti og styrk.

Fyrir hverja er námskeiðið? 

Námskeiðið er hugsað fyrir aðstandendur blindra og sjónskertra einstaklinga.  

Um hvað snýst námskeiðið? 

Á þessu námskeiði bjóða Steinunn Sævarsdóttir félagsráðgjafi og Bjarni Karlsson sálgætir aðstandendum blindra og sjónskertra einstaklinga upp á fræðslu og samtal. Lögð er áhersla á trúnað og gagnlega samvinnu. Fjallað verður meðal annars um: 
• sorg, vonbrigði og úrvinnslu 
• áhrif sjónskerðingar á sambönd og fjölskyldulíf 
• eigin þarfir, mörk og ábyrgð 
• virk og nærandi samskipti 

Hvenær er námskeiðið? 

Boðið verður upp á tvö námskeið, miðuð að aldri þess sem er blindur eða sjónskertur. Um er að ræða tvö skipti, tvær klukkustundir í senn. Námskeiðin verða:  

  • Aðstandendur eldri notenda (67+ ára) 10. og 12. nóvember kl.14:00-16:00 

  • Aðstandendur yngri notenda (yngri en 67 ára) 10. og 12. nóvember kl.16:30-18:30 

Skráning 

Skráning fer fram í síma 545-5800 eða á netfangið sjonstodin@sjonstodin.is Námskeiðsskráning er hafin og stendur til föstudagsins 6. nóvember. 

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer fram á Sjónstöðinni, Hamrahlíð 17, 6. hæð.