Táknmálskennari óskast
23. október 2025
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra auglýsir lausa til umsóknar 50-100% stöðu táknmálskennara.

Helstu verkefni og ábyrgð
Starf táknmálskennara heyrir undir táknmálssvið stofnunarinnar og taka táknmálskennarar þátt í ýmsum samvinnuverkefnum, bæði á því sviði og þvert á svið. Verkefni táknmálskennara tengjast vinnu við íslenskt táknmál, einna helst táknmálskennslu og námsefnisgerð en einnig vinna þeir önnur verkefni á starfssviði stofnunarinnar sem þeim eru falin.
Hæfniskröfur
Gott vald á íslensku táknmáli.
Þekking á menningarsamfélagi döff fólks.
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp.
Góð samskiptafærni, þjónustulund, stundvísi og skipulagshæfileikar.
Bílpróf er kostur.
Öll starfsviðtöl fara fram á íslensku táknmáli. Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að gangast undir færnimat í íslensku táknmáli.
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er málstöð íslensks táknmáls og starfar fyrir táknmálssamfélagið á Íslandi. Við viljum ráða starfsmann með skapandi hugsun og sem hefur einlægan áhuga á íslensku táknmáli og metnað fyrir kennslu málsins. Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar; frumkvæði, samvinna og virðing.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini auk upplýsinga um mögulega umsagnaraðila. Í kynningarbréfi skal gerð grein fyrir ástæðu umsóknar og því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Kynningarbréf á myndbandsformi má senda á netfangið eyrun.aradottir@shh.is.
Við ráðningu er jafnréttisáætlun stofnunarinnar fylgt. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfið er staðbundið og gert er ráð fyrir að það sé unnið að mestu á starfsstöð stofnunarinnar og á vettvangi kennslu á höfuðborgarsvæðinu og í nærliggjandi sveitarfélögum.
Samskiptamiðstöð er heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfsmanna.
Samskiptamiðstöð er táknmálsvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á íslenskt táknmál í öllu innra og ytra starfi stofnunarinnar.
Á heimasíðu stofnunarinnar www.shh.is má finna upplýsingar um stofnunina og starfsemi hennar.
Auglýst er eftir táknmálskennurum í fullt starf í dagvinnu (100% starfshlutfall) auk möguleika á eftirspurnartengdri yfirvinnu á kvöldin og um helgar. Hlutastarf er þó einnig möguleiki.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07. 11. 2025
Nánari upplýsingar veitir
Eyrún Helga Aradóttir, sviðsstjóri táknmálssviðs - eyrun.aradottir@shh.is - 5627702 , Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Laugavegi 166, 105 Reykjavík -
Hægt er að sækja um starfið inn á Starfatorgi.
