Fimm íslensk verkefni hljóta styrki úr Creative Europe Culture árið 2025
2. júní 2026
Íslenskar menningarstofnanir og listastarfsemi náðu framúrskarandi árangri í úthlutunum Creative Europe Culture árið 2025. Alls hlutu fimm verkefni styrki úr áætluninni og nema styrkir til íslenskra þátttakenda samtals 619.049 evrum.

Mynd af vef Listasafns Íslands
Árangurinn er sérstaklega athyglisverður í ljósi þess að yfir 1.600 umsóknir bárust í samstarfsverkefnaflokkinn og samkeppnin því meiri en nokkru sinni fyrr.
Listasafn Íslands leiðir milljón evru samstarfsverkefni
Mesta athygli vekur að Listasafn Íslands leiðir samstarfsverkefnið CUSP: Creative Understanding, Saving and Preserving Time Based Media Art, sem hlaut 1 milljón evra styrk til þriggja ára.
Hlutur Listasafns Íslands nemur 405.000 evrum og er þetta í annað sinn sem íslenskur aðili leiðir svo umfangsmikið samstarfsverkefni innan Creative Europe.
Verkefnið hefur það markmið að efla þekkingu og kunnáttu í varðveislu tímatengdrar myndlistar, svo sem vídeóverka, hljóðverka, stafrænna verka og gjörninga. Verkefnið spannar allt ferli slíkra verka, frá sköpun til langtímavarðveislu, og felur meðal annars í sér listamannadvalir, rannsóknir, þróun varðveislustaðla, neyðarviðbragðsáætlanir og umhverfisvænar lausnir í stafrænni varðveislu.
Meðal samstarfsaðila eru Nasjonalmuseet í Noregi, LiMA í Hollandi, Vasulka Kitchen í Tékklandi og Mystetskyi Art Arsenal í Úkraínu, auk Vasulka Foundation, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Frétt Listasafns Íslands um verkefnið
Tjarnarbíó tengir saman listafólk á jaðarsvæðum Evrópu
Tjarnarbíó tekur þátt í verkefninu Creative Peripheries – From the Arctic to the Amazon: A Network for Europe’s Peripheral Artists.
Verkefnið er leitt af Compagnie Théâtrale Guyanaise frá Frakklandi og hlaut 183.557 evra styrk, þar af nemur hlutur Tjarnarbíós 29.232 evrum.
Markmið verkefnisins er að efla samstarf og sýnileika listafólks á jaðarsvæðum Evrópu, allt frá Norðurslóðum til Suður-Ameríku.
Hafnarhaus vinnur að loftslagsverkefni með listum og menningu
Hafnarhaus tekur þátt í verkefninu CARE: Climate Artivism, Resilience and Engagement, sem er leitt af Izyashtni Dela í Búlgaríu.
Heildarstyrkur verkefnisins er 200.000 evrur og hlutur Hafnarhauss 42.873 evrur.
Verkefnið nýtir kraft lista og menningar til að efla umhverfisvitund, borgaralega þátttöku og viðnámsþrótt ungs fólks gagnvart loftslagsáskorunum.
Listaháskóli Íslands rannsakar samfélagslegar og jarðfræðilegar umbreytingar
Listaháskóli Íslands tekur þátt í verkefninu Shaken Grounds: Art as Seismography, sem er leitt af Muzej Suvremene Umjetnosti.
Verkefnið kannar tengsl milli jarðfræðilegra, félagslegra og sálfræðilegra umbreytinga með aðferðum samtímalistar.
Heildarstyrkur verkefnisins er 199.881 evra og hlutur Listaháskóla Íslands 34.596 evrur.
List fyrir alla í samstarfi um menningu barna
List fyrir alla, á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, tekur þátt í verkefninu HARK! Helping Art Reach Kids.
Verkefnið er leitt af Västra Götalandsregionen í Svíþjóð og sameinar 19 samstarfsaðila frá 12 löndum.
Áhersla verkefnisins er á tónlistarviðburði fyrir og með börnum, auk þess að efla menningartenglastarf og þátttöku nemenda í menningarráðum.
Heildarstyrkur verkefnisins nemur 1.698.494 evrum og hlutur Listar fyrir alla er 107.349 evrur.
Creative Europe styrkir alþjóðlegt menningarsamstarf
Úthlutanir ársins 2025 sýna að íslenskar menningarstofnanir eru eftirsóttir samstarfsaðilar í Evrópu og taka virkan þátt í þróun nýrrar þekkingar, rannsókna og listsköpunar.