Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Íslensk kvikmynda- og sjónvarpsverkefni hljóta yfir 1,2 milljónir evra úr Creative Europe MEDIA

2. júní 2026

Íslensk kvikmynda- og sjónvarpsverkefni hafa náð glæsilegum árangri í úthlutunum Creative Europe MEDIA árið 2025. Samtals hlutu fjögur íslensk verkefni og aðilar styrki að fjárhæð 1.240.000 evra, sem samsvarar um 260 milljónum króna.

Hot Stuff fær 500.000 evra framleiðslustyrk

Framleiðslufyrirtækið Glassriver hlýtur 500.000 evra framleiðslustyrk fyrir sjónvarpsþáttaröðina Hot Stuff.

Verkefnið er samstarfsframleiðsla Glassriver á Íslandi og rúmenska framleiðslufyrirtækisins IDEA Film og hefur vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi.

Nánar um samstarfið um Hot Stuff

The Death of a Horse hlýtur 500.000 evra fá TV Online styrk

Sameinuðu íslensku kvikmyndaveldin fá 500.000 evra TV Online styrk fyrir verkefnið The Death of a Horse.

Styrkurinn styður við þróun og framleiðslu verksins og eykur möguleika þess á alþjóðlegri dreifingu.

Nánar um Death of a horse

Þróunarstyrkur fyrir tvö ný verkefni

Framleiðslufyrirtækið S101 hlýtur 90.000 evra þróunarstyrk (e. Mini Slate) fyrir verkefnin Paradox og Shadowline.

Slíkir styrkir eru veittir til þróunar á fleiri en einu verkefni samtímis og styrkja þannig langtímauppbyggingu framleiðslufyrirtækja.

RIFF fær styrk til kvikmyndahátíðarhalds

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) hlýtur 150.000 evra styrk frá Creative Europe MEDIA.

Styrkurinn skiptist jafnt á árin 2025 og 2026 og styður við áframhaldandi starfsemi hátíðarinnar sem hefur um árabil verið einn mikilvægasti vettvangur alþjóðlegrar kvikmyndamenningar á Íslandi.

Mikilvægur stuðningur við íslenska kvikmyndagerð

Árangur íslenskra verkefna í MEDIA árið 2025 sýnir sterka stöðu íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu í Evrópu. Styrkirnir styðja við nýsköpun, alþjóðlegt samstarf og aukna sýnileika íslensks efnis á erlendum mörkuðum.

Lesa frétt um úthlutanir Creative Europe Culture