Heilbrigðisvísindasjóður heilbrigðisráðuneytisins auglýsir eftir umsóknum um rannsóknarstyrki á sviði öldrunar
18. ágúst 2026
Í ár er sérstök áhersla lögð á rannsóknir á sviði öldrunar, en sjóðurinn styrkir rannsóknir í heilbrigðisvísindum frá grunnvísindum til lýðheilsu og klínískra rannsókna.

Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á metnaðarfullar rannsóknir á sviði öldrunar, í samræmi við áherslur stjórnar sjóðsins og stefnu stjórnvalda.
Veittir verða fimm eins árs rannsóknarstyrkir til rannsóknarhópa sem vinna að rannsóknum á öldrun. Hámarksfjárhæð hvers styrks er 15 milljónir króna, auk allt að 5 milljóna króna vegna samreksturs og aðstöðu, þannig að heildarstyrkur getur numið allt að 20 milljónum króna.
Heilbrigðisvísindasjóður hefur það hlutverk að efla rannsóknir í heilbrigðisvísindum, allt frá grunnvísindum til lýðheilsu og klínískra rannsókna. Með áherslu ársins á öldrun er kallað eftir öflugum rannsóknaverkefnum sem geta aukið þekkingu á þessu sífellt mikilvægara sviði heilbrigðisvísinda.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00 að íslenskum tíma. Umsóknum skal skilað rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.
Heilbrigðisvísindasjóður er samkeppnissjóður sem heyrir undir heilbrigðisráðherra og er í umsjón Rannís. Umsóknir eru metnar faglega með hliðsjón af meðal annars vísindalegu gildi verkefna, færni og aðstöðu umsækjenda og líkum á að verkefnin skili mælanlegum árangri og ávinningi.
Kallað er eftir metnaðarfullum rannsóknarverkefnum á sviði öldrunar.
Fyrirspurnum má skal senda á netfangið hvsjodur@rannis.is