Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Auglýst eftir umsóknum vegna sumarnámskeiða SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara)

7. janúar 2026

Umsóknarfrestur rennur út 16. febrúar 2026, kl. 15:00.

Fagfélög geta sótt um styrk til að halda greinabundin sumarnámskeið og framhaldsskólar geta sótt um styrk til að halda námskeið fyrir kennara sína. Stjórn SEF tekur afstöðu til hverrar umsóknar fyrir sig.

Félög tungumálakennara geta sótt um styrki vegna námskeiða erlendis annað hvert ár, en önnur félög á þriggja ára fresti. Góður rökstuðningur skal liggja fyrir því að halda námskeiðið erlendis.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) mun fara yfir umsóknir og taka ákvörðun um hvort námskeið verði styrkt eða ekki. Styrkur er greiddur út að námskeiði loknu, þegar lokaskýrsla, námskeiðsmat og endanlegt uppgjör hefur borist Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins

Upplýsingar um sjóðinn veitir Ingunn Helga Bjarnadóttir, sef@rannis.is