Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð haustið 2026
17. ágúst 2026
Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til fimmtudaginn 15. október 2026 klukkan 15:00.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
Nýjungar og þróunarverkefni.
Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem ætlað er að efla félags- og tilfinningahæfni, félagslega virkni og samtal ungs fólks um samkennd og inngildingu.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á vefsvæði sjóðsins.