Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Auglýst eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann

12. maí 2026

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann 2026. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli ársins 2025 og ársins 2024. Tilnefningu er hægt að senda til og með 31. ágúst. Vaxtarsprotinn verður afhentur í 20. sinn í byrjun september.

Skilyrði:

  • Frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu

  • Fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar

Senda inn tilnefningu - athugið að allar upphæðir þurfa að vera í íslenskum krónum.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónum króna.

Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Fyrri handhafar Vaxtarsprotans