5,5 milljarðar til íslenskrar nýsköpunar í umhverfis- og loftslagsmálum
11. júní 2026
Íslenskir aðilar hafa fengið úthlutað 5,5 milljörðum króna úr umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins, LIFE, frá árinu 2021.

Ársfundur LIFE áætlunarinnar á Íslandi var haldinn í Norræna húsinu í lok maí og kynntu þar fulltrúar fjögurra verkefna reynslu sína af áætluninni.
Gengi Íslands hefur verið umfram allar væntingar í þessari áætlun. Þessar upphæðir segja ekki alla söguna en það er ekki síður samstarfið og tengingarnar sem verða til í kringum þessi verkefni sem skilja eftir sig árangur sagði Sigurður Óli Sigursson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs hjá Rannís.
Meðal þeirra var Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri hjá FirstWater, en verkefnið Terraforming LIFE hlaut tæplega 900 milljón króna styrk til að þróa nýja tækni og aðferðir fyrir samþætt landbúnaðar- og fiskeldiskerfi til að styðja við fyrirhugaðan vöxt landeldis á Íslandi. Með aukinni framleiðslu eykst magn fiskeldismykju, sem kallar á sjálfbæra meðhöndlun hliðarstrauma.
Þá var verkefnið ICEWATER einnig kynnt en það er samstarf yfir 20 sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana og snýr að verndun vatnsgæða á Íslandi, meðal annars með úrbótum á fráveitu og forhreinsun á fráveituvatni frá matvælaiðnaði. Verkefnið hlaut um 3,5 milljarða styrk úr áætluninni.
Vatn er undirstaðan að þeim umhverfisgæðum og lífsgæðum sem við búum við á Íslandi og áskorun okkar er að viðhalda þeim frábæru vatnsgæðum sem við búum við. Hreint vatn er undirstaðan að nær allri verðmætasköpun á Íslandi, sagði Sæmundur Sveinsson, verkefnisstjóri ICEWATER hjá Umhverfis- og orkustofnun. Það eru gríðarlegir vaxtarmöguleikar en við þurfum að byggja upp innviði til að passa þessar auðlindir samhliða.
Þann 25. júní mun Rannís bjóða uppá heilsdags vinnustofu í umsóknarskrifum í LIFE áætluninni.
Opið er fyrir umsóknir í LIFE og eru umsóknarfrestir í september.
Landstengiliðir LIFE hjá Rannís sinna ráðgjöf við umsækjendur:
Björg María Oddsdóttir –
Sandra Berg Cepero –
Svandís Ósk Símondardóttir –


