Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Jafnlaunastefna Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

Jafnlaunastefna Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu nær til alls starfsfólks stofnunarinnar og tekur mið af Jafnlaunastaðli ÍST85:2012, 6. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 ásamt viðeigandi lögum, reglugerðum og stofnanasamningum. Ákvarðanir launa og annarra hlunninda skulu byggðar á málefnalegum forsendum þar sem jafnræðis er gætt og tekið er mið af verðmæti starfa. Stefna Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu er að allt starfsfólk, óháð kyni, njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.

Forstjóri er ábyrgðaraðili jafnlaunakerfis Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð í samræmi við kröfur Jafnlaunastaðals.

Mannauðsstjóri er tilnefndur ábyrgðaraðili jafnlaunakerfis Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, því fylgir ábyrgð á að fylgja eftir starfrækslu og upplýsingamiðlun varðandi frammistöðu gagnvart markmiðum.

Til að ná þessum markmiðum mun Miðstöð menntunar og skólaþjónustu:

  • Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi samkvæmt Jafnlaunastaðli ÍST 85:2012.

  • Framkvæma reglulega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf og greina laun og hlunnindi starfsfólks til að kanna hvort um kynbundinn launamun er að ræða og kynna helstu niðurstöður fyrir starfsfólki.

  • Bregðast við óútskýrðum launamuni með stöðugum umbótum og eftirliti.

  • Starfsfólk fái kynningu á jafnlaunastefnu árlega. Jafnlaunastefna skal vera aðgengileg á ytri vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

  • Rýna markvisst í þau ferli og þær forsendur sem stjórna ákvörðunum um laun.

  • Framkvæma skal reglubundnar úttektir á framvindu, innri úttektir og rýni stjórnenda.

  • Tryggja að viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma sé fylgt og staðfesta hlítingu.

Starfsfólki Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu er ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs og er yfirmanni eða öðrum sem koma að ákvörðun launa óheimilt að óska trúnaðar starfsfólks um launakjör þeirra.

Júní 2025

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280